{"product_id":"illgresi-andskotans","title":"Illgresi Andskotans","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eIllgresi andskotans fjallar um plöntuna hamp Cannabis sativa L. Þetta er ekki bók um vímuefni heldur verð­mæta nytja­plöntu. Gífurleg fjöl­hæfni einkennir hana og sem betur fer er við­horfið gagnvart henni að breytast.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eHöfundur: Þorsteinn Úlfar Björnsson\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv class=\"mb-4\"\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"mb-4\"\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cp\u003eNýverið sendi Þorsteinn Úlfar Björnsson frá sér bók sem hann kallar Illgresi andskotans og fjallar um nytjaplöntuna Cannabis sativa eða hamp í sinni víðustu mynd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞorsteinn, sem er bæði höfundur og útgefandi bókarinnar segir að hún sé ekki kennslubók í kannabisreykingum heldur sé um að ræða umfjöllun um nytjar á plöntu sem býður upp á gríðarlega möguleika og eigi án efa eftir að setja mark sitt á landbúnað hér á landi sem víðar í heiminum á komandi árum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNýtingarmöguleikar\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ bókinni, sem er í handhægu broti og ríkulega myndskreytt, er meðal annars sagt frá grasafræði plöntunnar, saga hampnytja rakin og farið yfir þau not og nytjar sem plantan hefur upp á að bjóða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞorsteinn fjallar einnig um efnainnihald plöntunnar og ástæður þess að plantan var bönnuð og af hverju yfirvöld í Bandaríkjunum fóru í stríð við hana.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eRæktun hér á landi\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFyrir þremur árum hófst ræktun á iðnaðarhampi hér á landi og lagt hefur verið fram á Alþingi þingsályktunartillaga um að leyfð verði ræktun á lyfjahampi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞorsteinn segir að ræktun á hampi geti verið góð búbót fyrir bændur og skilað þjóðarbúinu talsverðum tekjum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHann segist einnig vona að bókin muni opna fyrir uppbyggilegar umræður um hamp sem að hans mati, og fleiri, hefur lengi verið á einn veg og það neikvæð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eReview: Vilmundur Hansen\u003c\/p\u003e","brand":"HempLiving.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43809089749191,"sku":"","price":5990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0539\/6149\/0631\/files\/untitled-1-1.png?v=1709560388","url":"https:\/\/hempliving-is.myshopify.com\/products\/illgresi-andskotans","provider":"Hempliving.is","version":"1.0","type":"link"}